Daði Freyr og hljómsveit hans Gagnamagnið íhugaði að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins, undankeppni Eurovision, á næsta ári en er hætt við vegna þess að keppnin er haldin í Ísrael. Þetta tilkynnti Daði Freyr á Twitter rétt í þessu.
Gagnamagnið íhugaði þátttöku í Söngvakeppninni 2019.
Við getum ekki ímyndað okkur að taka þátt í Eurovisiongleðinni með góðri samvisku á meðan Ísraelsríki og þeirra her beitir Palestínumönnum hrottalegu ofbeldi í næsta nágrenni.
Við hvetjum RÚV til að taka ekki þátt.
??
— Daði Freyr ? (@dadimakesmusic) May 15, 2018
„Við getum ekki ímyndað okkur að taka þátt í Eurovisiongleðinni með góðri samvisku á meðan Ísraelsríki og þeirra her beitir Palestínumönnum hrottalegu ofbeldi í næsta nágrenni. Við hvetjum RÚV til að taka ekki þátt,“ segir Daði á Twitter og birtir fána Palestínu.
Þegar þetta er skrifað hafa tæplega 4500 manns skrifað undir lista þar sem Íslendingar eru hvattir til að sniðganga keppnina á næsta ári. Á síðu undirskriftalistans kemur fram að í ljósi mannréttindabrota Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni sé ekki siðferðilega verjandi að taka þátt í glanskeppni eins og Eurovision „í skugga þess ofbeldis sem Ísrael beitir nágranna sína“. Þá kemur fram að Ísraelsríki hafi á undanförnum mánuðum myrt tugi einstaklinga fyrir það eitt að mótmæla ástandinu.