Dánarorsök Birnu Brjánsdóttur var drukknun. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Við drukknun berst vatn í lungu og samkvæmt heimildum RÚV sýnir bráðabirgðaskýrsla krufningar að vatn var í lungum Birnu.
Á vef RÚV kemur fram að á líkinu hafi verið áverkar sem benda til þess að þrengt hafi verið að hálsi hennar. Lík Birnu var nakið þegar það fannst í fjörunni við Selvogsvita.
Heimildir RÚV herma að lögreglan telji sig hafa það nákvæma niðurstöðu á því hvernig Birna lést en beðið er eftir lokaskýrslu krufningarinnar. Í Fréttablaðinu í morgun kom fram að Birna hafi verið á lífi í rauða Kia Rio bílnum á höfninni í Hafnarfirði að morgni laugardagsins 14. janúar.
Fréttablaðið greinir frá því að Birnu hafi ekki verið unnið mein fyrr en eftir að skipverjinn, sem sat í gæsluvarðhaldi í tvær vikur grunaður um aðild að málinu og var sleppt í síðustu viku, var farinn um borð í togarann Polar Nanoq.
Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum þá sést rauði Kia Rio bíllinn í eftirlitsmyndavélum Hafnarfjarðarhafnar klukkan rúmlega sex um morguninn. Nikolaj Olsen og Thomas Møller Olsen sjást koma út úr bílnum, ræða saman í stutta stund áður en Nikolaj fer um borð í skipið.
Thomas keyrir hins vegar á enda bryggjunnar og er þar í um 50 mínútur áður en hann ekur burt af hafnarsvæðinu. Reynt hefur verið að rekja ferðir hans til um 11.30 sama dag.
Fréttablaðið greinir frá því að Nikolaj hafi greint frá málavöxtum og að lögregla telji að hann hafi ekkert með morðið á Birnu að gera. Í umfjöllun Fréttablaðsins kemur fram að lögregla gangi nú út frá því að Birnu hafi verið unninn mestur miski á bryggjusporðinum við Hafnarfjarðarhöfn á milli 6.10 og 7 að morgni þegar Thomas Møller Olsen var einn með henni í bílnum.
Blóð úr Birnu fannst í bílaleigubílnum en samkvæmt RÚV gefur það til kynna að ráðist hafi verið á hana þar. Ólíklegt þykir að vopni hafi verið beitt.