Auglýsing

Danskur faðir myrti tvö börn sín á heimili þeirra

Karlmaður á fimmtugsaldri myrti í gær tvö börn sín á heimili þeirra í bænum Stenstrup á Fjóni í Danmörku. Börnin voru sex og átta ára gömul. Eftir verknaðinn framdi maðurinn sjálfsmorð. Það er danska blaðið Berlingske Tidende sem greinir frá þessu.

Börnin fundust látin ásamt föður sínum síðdegis í gær, eftir að ættingi hafði látið vita að ekki væri allt með feldu á heimilinu. Fram kemur í danska blaðinu að maðurinn hafi fyrir tveimur árum skilið við barnsmóður sína.

„Hann leit út fyrir að vera venjulegur náungi og hann var oft með börnin. Þetta er mikið reiðarslag fyrir alla, “ segir nágranni mannsins í samtali við Berlingske Tidena.

Þetta er í annað sinn á þessu ári sem mál sem þetta kemur upp í Danmörku en þann 19. mars myrti 35 ára karlmaður tvö börn sín á heimili sínu í Kolding á Jótlandi og tók síðan eigið líf.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing