Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands. Þetta kom fram í viðtali við Davíð í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Davíð hefur verið lengi verið orðaður við framboð og tók af öll tvímæli í Sprengisandi rétt í þessu.
Kosningarnar fara fram þann 25. júní og forsetaframbjóðendur þurfa að tilkynna um framboð fimm vikum áður, eða 21. maí.