Diljá Þorkelsdóttir er eins og margir Íslendingar á Twitter. Hún er aðeins búin að tísta 13 sinnum og er með 32 fylgjendur. Þrátt fyrir að vera allt annað en virk á Twitter eru bæði Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og stórstjarnan Britney Spears bæði að fyglja henni.
Það var systir hennar, Greta, sem benti á þetta á Twitter í gær
SYSTIR MIN ER MEÐ 31 FOLLOWER OG EINN ÞEIRRA ER BRITNEY OG HINN OBAMA???????? hvað er að í heiminum i dont deserve this pic.twitter.com/33UGeef0X4
— greta (@gretathorkels) June 27, 2018
Diljá segir það besta vera að hún sé ekki að fylgja þeim til baka
diljá: “það besta er að ég er ekki að followa þau tilbaka”
— greta (@gretathorkels) June 27, 2018
Engar skýringar hafa fengist á þessu ennþá en Greta krefur söngkonuna um svör
@britneyspears explain this
— greta (@gretathorkels) June 27, 2018