Fyrsta stiklan fyrir endurgerð Disney á kvikmyndinni um Hefðarfrúnna og umrenningin var frumsýnd í gær. Kvikmyndin er leikin endurgerð á klassísku teiknimyndinni frá árinu 1955.
Hægt verður að nálgast myndina á nýrri streymiveitu Disney, Disney+, frá og með 12. nóvember næstkomandi.