Eiturlyf, djamm og annar ólifnaður á Snapchat-aðgangi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur vakið athygli í morgun og margir hafa klórað sér í höfðinu yfir hvað í ósköpunum er í gangi.
Til dæmis á Twitter:
https://twitter.com/nadia_semichat/status/771932046562324480
Er engin að ritskoða Nova snappið! Vona að lögreglan fari í málið!!
— Ívar Guðmundsson (@ivargud) September 3, 2016
Uu hver var eiginlega með Nova snappið í nótt?? Það eru krakkar sem horfa á þetta #novaisland #nova @nova_island
— Íris Björk (@irisbjorki) September 3, 2016
Hakkaði einhver nova snappið??
— Birgir Þór (@birgirtho) September 3, 2016
Í nótt birtust myndbönd frá tveimur stúlkum á villtu djammi sem endaði með því að önnur stúlkan virtist vera að flýja ofbeldismann. Um er að ræða hliðarsögu úr kvikmyndinni Eiðnum eftir Baltasar Kormák sem verður frumsýnd hér á landi föstudaginn 9. september.
Í tilkynningu frá Nova kemur fram að þetta sé í fyrsta skipti á Íslandi og jafnvel í heiminum sem Snapchat samskiptamiðillinn er nýttur til að vekja athygli á kvikmynd með þessum hætti.
Hægt er að fylgjast með framvindunni fram eftir degi og notendanafn Nova á Snapcaht er novaisland.