Grínistinn og leikarinn Halldór Halldórsson, einnig þekktur sem Dóri DNA, tjáði sig um hugmyndir almennings um offitu á samfélagsmiðlum í gær. Hann sagði að fólk væri óskilningsríkt þegar kemur að offitu.
Dóri gefur í skyn að það sé ekki svo einfalt að fólk geti bara hysjað upp um sig buxurnar og hætt að éta. Það sé hola í hjartanu.
„En áttið ykkur á einu, á hverjum degi vaknar maður og hugsar alvarlega, hvað ætli þau segi við mig í dag, hvernig ætli þau horfi á mig,“ skrifar hann.
Hann segir að þegar hann sjái einhvern feitan þá viti hann að þarna sé einhver sem ber bresti sína utan á sér en að þarna sé líka manneskja sem er undir yfirborðinu byggð úr graníti.
https://twitter.com/DNADORI/status/1069580580394803201
Svo þegar ég sé einhvern feitan, þá veit ég að þarna er einhver sem ber bresti sína utan á sér. En ég veit líka að þarna er manneskja sem er undir yfirborðinu byggð úr graníti.
— Halldór Halldórsson (@DNADORI) December 3, 2018
Færslurnar hafa vakið mikla athygli en Bubbi Morthens þakkaði Dóra meðal annars fyrir þær. Hann segist hafa verið ömurlegur „body fasisti“ en hafi nú náð að laga mestu skekkjuna í sjálfum sér.
Ég var ömurlegur body fasisti en hef náð að laga að mestu skekkjuna í sjálfum mér takk fyrir þetta❤️
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) December 3, 2018