Fyrirsætan Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrum Ungfrú Ísland og Miss Universe Iceland og Vignir Þór Bollason kírópraktor, eignuðust dóttur saman fyrir helgi.
Sjá einnig: Arna Ýr og Vignir eiga von á barni: „Lítið kraftaverk á leiðinni“
Arna Ýr greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem hún sagði að þau væru yfir sig ástfangin af stúlkunni.
„Heilbrigða 15 marka stúlkan okkar Vignis fæddist í gærkveldi eftir langa en afar góða fæðingu í Björkinni. Erum yfir okkur ástfangin af litlu hárprúðu dúllunni okkar og þakklát fyrir hversu heilsuhraust hún er,“ skrifar Arna Ýr við færslu á Instagram.