Plötusnúðurinn Óli Geir hefur birt einskonar uppgjör við fortíðina á Youtube.
Myndbandið er afar dramatískt og sýnir Óla Geir annars vegar í stífri þjálfun ásamt því fréttir af vandræðum hans í kringum tónlistarhátíðina Keflavík Music Festival birtast inni á milli. Óli sendir eftirfarandi skilaboð með myndbandinu:
Lífið er ekki alltaf dans á rósum. Ekki láta hindranir stoppa þig. Finndu leið framhjá þeim. Sama hvað, ég gefst aldrei upp.
http://youtu.be/j-BHp0WrKWU
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Óli Geir setur dramatískt myndband á Youtube. Eftir að hann var sviptur titlinum Herra Ísland fyrir nokkrum árum birti hann þetta myndband, sem var einskoar uppgjör við keppnina: