Eins og fjölmiðlar hafa greint frá þá seldist upp á tónleika breska tónlistarmannsins Ed Sheeran á einungis um tveimur og hálfum tímum. Tæplega þrjátíu þúsund miðar seldust og færri komust að en vildu. Aðdáendur sem ekki fengu miða geta nú tekið gleði sína á ný.
Tónleikahaldarinn Sena Live hefur nú staðfest að Ed Sheeran verður með aukatónleika á Laugardalsvelli þann 11. ágúst næstkomandi. Miðasalan á aukatónleikana hefst á föstudaginn klukkan níu á vefnum Tix.is.
Í boði eru fjögur verðsvæði:
– Standandi: 15.990 kr. (stæði)
– Sitjandi C: 19.990 kr. (græn hólf á mynd)
– Sitjandi B: 24.990 kr. (blá hólf á mynd)
– Sitjandi A: 29.990 kr. (rauð hólf á mynd)