Ný sería af spjallþættinum Með Loga hefst á morgun, fimmtudag. Fyrsti gestur Loga í þáttaröðinni er leikkonan Edda Björgvins. Logi og Edda ræða ferilinn hennar Eddu og fara yfir skemmtilegar sögur.
Nýja serían telur átta þætti en gestir Loga í nýju þáttaröðinni auk Eddu verða Björgvin Halldórsson, Kári Stefánsson, Linda Pétursdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og forsetafrúin Eliza Reid.