Auglýsing

Edda Björk á yfir höfði sér allt að sex ára dóm í Noregi

Það að ræna börnum, þó svo að þau séu þín eigin, er litið grafalvarlegum augum í Noregi og af þeim sökum hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur Eddu Björk Arnardóttur. Hún rændi börnum sínum og flaug með ólöglega til Íslands árið 2022 með aðstoð vellauðugs kærasta síns sem, samkvæmt heimildum Nútímans, gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir að aðstoða hana við ránið.

Norsk lög fjalla alveg sérstaklega um atvik sem þessi en ef viðurlögin eru skoðuð kemur í ljós að Edda Björk gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisdóm í Noregi ef hún verður fundin sek um barnsránið og alvarlega vanrækslu. Nútíminn hefur haft samband við saksóknarann þar ytra og er nú beðið eftir svari við því hvort embættið í Noregi sækist eftir hámarksrefsingu við brotinu. Refsiákvæðin sem um ræðir taka bæði til greina ólöglegan flutning á ólögráða ungmenni og því getur fylgt, eins og áður segir, refsing vegna alvarlegrar vanrækslu á umönnun. Hvernig norska lögreglan lítur á brot Eddu er ekki vitað.

Edda Björk sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem hún sagði framsalsbeiðnina óljósa, sérstaklega í ljósi þess að ekki væri búið að ákveða dagsetningu. Samkvæmt heimildum Nútímans hafa dómstólar þar í landi ákveðið að bíða með útgáfu dagsetningu réttarhaldanna þar sem ekki er vitað hvenær laganna verðir hafa hendur í hári Eddu Bjarkar sem fer nú huldu höfði á Íslandi ásamt börnum sínum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing