Auglýsing

Eftirlitsmyndavélar sýna Birnu á gangi eina síns liðs í miðborginni

Birna Brjánsdóttir sést í eftirlitsmyndavélum ganga ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi nr. 31 þar sem hún hverfur sjónum um kl 05:25. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109.

Lögreglan hefur dreift eftirfarandi myndum í þágu leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur en síðast er vitað um ferðir hennar í miðborg Reykja­vík­ur um klukkan fimm aðfaranótt laugardags.

Á myndunum má sjá rauða fólksbifreið sem sennilega er af gerðinni Kia Rio. Bifreiðinni var ekið vestur Laugaveg á móts við hús nr. 31, kl. 05:25 aðfararnótt laugardagsins 14. janúar sl.

Í því skyni að leita upplýsinga um ferðir Birnu biður lögreglan ökumann rauðu bifreiðarinnar að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109 sem allra fyrst. Þá biður lögreglan alla þá sem voru á ferðinni á þessum slóðum um kl. 05:25 aðfararnótt 14. janúar sl., og kynnu að hafa veitt Birnu Brjánsdóttur athygli að hafa samband við lögreglu.

Það sem við vitum

  • Birna er tvítug, fædd árið 1996. Hún er 170 sentimetrar á hæð, 70 kíló og með sítt rauðleitt hár. Hún var klædd í svartar gallabuxur, ljósgráa peysu, svartan flísjakka með hettu og var í svörtum Dr. Martens-skóm þegar síðast sást til hennar.
  • Síðast er vitað um ferðir Birnu við skemmtistaðinn Húrra um klukkan fimm aðfaranótt laugardags.

  • Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom síðast merki frá farsíma Birnu á farsímasendi í Hafnarfirði. Leitað hefur verið að henni á svæðinu í kringum gömlu slökkvistöðina í Hafnarfirði þar sem rafhlaða símans virðist hafa tæmst.
  • Samkvæmt upplýsingum frá móður Birnu er ekki hægt að útiloka að símanum hafi verið stolið en Birna hætti að senda skilaboð um klukkan þrjú um nóttina. „[Hún] sést ganga ein upp Laugaveginn. Sem gæti breytt leitarfókusnum töluvert,“ segir móðir Birnu á Facebook.
  • Stofnuð hefur verið Facebook-síða tileinkuð leitinni. Á síðunni er meðal annars haldið utan um svæði þar sem fólk hefur þegar leitað.

Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu, kallaði eftir allsherjarleit í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Þetta er tvítug stelpa, hún er ekki í neinu rugli, hún er ekki að strjúka að heiman. Ég vil bara fá allsherjarleit. Ég vil að björgunarsveitir taki þátt í þessu og það sé leitað úti um allt að henni á meðan það er einhver von,“ sagði hún.

Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing