Talið er að Einar K. Guðfinnsson verði næsti innanríkisráðherra. Heimildir Nútímans herma að tilkynnt verði um arftaka Hönnu Birnu Kristjánsdóttur eftir ríkisstjórnarfund á morgun.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að forystumenn Sjálfstæðisflokksins stefni að því að ákveða hver verður arftaki Hönnu Birnu. Þar segir einnig að mestar líkar séu á að Bjarni Benediktsson geri tillögu um að Einar, sem er forseti Alþingis, taki við embættinu.
Þingmennirnir Birgir Ármannsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokksins, hafa einnig verið orðuð við embættið.
Meira: Fjögur ummæli úr yfirlýsingu Hönnu Birnu sem meika ekki sens
Hanna Birna sagði af sér á föstudag, eins og Nútíminn greindi frá fyrstur fjölmiðla. Yfirlýsingu hennar má lesa hér.