Auglýsing

Einhent kona gerir grín að sjálfri sér á Tinder: „Hands down the best catch on Tinder“

Hin tvítuga Lauren hefur svo sannarlega húmorinn á réttum stað en hún lenti í því fyrir ári síðan að missa handlegg í móturhjólaslysi. Etir slysið varð Lauren mjög virk á Twitter þar sem hún gerir óspart grín að sjálfri sér eins og sjá má hér að neðan.

Fyrir viku síðan ákvað hún að búa sér til aðgang á stefnumótaforritinu Tinder þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér og þeirri staðreynd að hún sé aðeins með eina hendi. Í viðtali við Huffington Post segist hún hafa fengið mjög mörg „matches“ en á Tinder gerist það þegar fólk hefur gefið hvort öðru læk en það er ekki fyrr en þá sem það getur spjallað saman í appinu. Hún segist þó ekki ætla sér að fara á stefnumót í kjölfarið.

En ég er bara að skemmta mér og hef engan áhuga á því að hitta neinn.

Lauren bætti því við að hún hefði stundum fengið leiðinlegar athugasemdir frá fólki á netinu en það hafi bara styrkt hana. Hún segir flesta hafa staðið við bakið á sér og hvatt sig áfram. „Það sýndi mér að fólki finnst ég ennþá falleg og það að missa hendi gerir mig ekki að verri manneskju,“ sagði Lauren.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing