Leikkonan Elizabeth Banks skaut föstum skotum á kollega sinn, Töru Reid, í viðtali á dögunum.
Enginn veit hvað býr að baki en sú fyrrnefnda hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið á meðan ferill þeirra síðarnefndu má muna sinn fífil fegurri.
Banks fer með hlutverk í hinum gríðarlega vinsælu Hunger Games-myndum, ásamt Jennifer Lawrence. Þá leikstýrir hún kvikmyndinni Pitch Perfect 2 sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu.
Banks var í viðtali í Hollywood Reporter á dögunum og ræddi þar um feril sinn í kvikmyndum.
Sumir lifa af og aðrir ekki. Ég fór einu sinni alltaf í prufur með Töru Reid — við náðum ekki öll að meika það. Við erum ekki öll ennþá hér.
Hún bætti svo kaldhæðnislega við að hún elskaði kvikmyndina Sharknado, sem Tara Reid leikur í.
Fréttavefurinn TMZ spurði Reid út í málið á dögunum og hún var vonsvikin.
„Ég hef alltaf verið aðdáandi Banks þannig að mér finnst sárt að heyra hana tala svona um mig.“