Leikkonan og fyrirsætan Emily Ratajkowski gagnrýnir franska tímaritið Madame Figaro harðlega fyrir breyta vörum sínum og brjóstum á forsíðu nýjasta tölublaðsins sem kom út fyrir skömmu.
Emily deildi mynd af forsíðunni á Instagram ásamt upprunalegu myndinni og það sést augljóslega að átt hefur verið við brjóst hennar og varir í eftirvinnslu. „Allir eru fallegir á sinn hátt og við erum öll óörugg með ýmislegt sem fellur ekki undir hefðbundnir skilgreiningar á fegurð,“ sagði Emily í færslu sem fylgdi myndunum á Instagram.
Ég, eins og svo margir aðrir, reyni að vinna mig í kringum óöryggið. Ég var gríðarlega vonsvikin að sjá að vörum mínum og brjóstum hafði verið breytt í Photoshop á forsíðumyndinni.