Fyrirsætan Emily Ratajkowski segir að myndbandið við lagið Blurred Lines sé algjör bölvun í tilveru sinni. Þetta segir hún í viðtali við tímaritið InStyle í Bretlandi.
Myndbandið við Blurred Lines þótti umdeilt á sínum tíma rétt eins og lagið sjálft en Ratajkowski kemur fram ber að ofan í myndbandinu ásamt fleiri fyrirsætum. Hún hefur þó sagt að myndbandið hafi hjálpað henni að koma sér á framfæri í Hollywood og orðið til þess að hún fékk lítið hlutverk í kvikmyndinni Gone Girl.
Hún virðist þó ekki ánægð með myndbandið í dag og segir í viðtalinu í InStyle að hún hafi ekki verið ánægð með hugmyndina að því í fyrstu.
„Ég virðist vera frekar pirruð í myndbandinu. Í dag er það algjör bölvun í tilveru minni,“ segir hún.
Ferill Ratajkowski er á miklu flugi í dag og hún leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni We Are Your Friends ásamt hjartaknúsaranum Zac Efron.