Leikkonan Emmy Rossum krefst þess að fá jafn há laun og leikarinn William H. Macy í þáttunum Shameless.
Rossum og Macy eru aðalleikarar þáttanna og samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs á hún nú í deilum við framleiðendur þáttanna eftir að hafa þénað minna en Macy í sjö seríur af þáttunum vinsælu.
Samkvæmt Variety hafa framleiðendur þáttanna þegar boðið henni jafn há laun og Macy en Rossum krefst þess að þeir bæti henni einnig upp fyrir að hafa borgað henni minna honum síðustu ár.
Macy var spurður út í kröfur Rossum á dögunum og finnst honum ekkert sjálfsagðara en að framleiðendur þáttanna myndu samþykkja kröfur hennar. „Löngu fokking tímabært! Hún vinnur eins mikið og ég. Hún á þetta skilið,“ sagði hann laufléttur í samtali við TMZ áður en hann sló á létta strengi: „Eina sem ég hef framyfir Emmy Rossum er að ég er fallegri.“