Auglýsing

Engin kynferðisofbeldismál tengd útihátíðum tilkynnt Landspítalanum

Engin kynferðisofbeldismál tengd útihátíðum hafa verið tilkynnt Landspítalanum um helgina samkvæmt frétt á vef RÚV.

Upplýsingafulltrúi spítalans segir þetta í skriflegu svari til fréttastofu RÚV.

Sjá einnig: Veggspjald í Vestmannaeyjum: „Sofandi samþykkir ekkert”

Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum að maður hafi áreitt unga konu kynferðislega með því að þukla á henni á bílastæðinu í Herjólfsdal. Vitni voru að atvikinu og var maðurinn handtekinn en ekki liggi fyrir kæra í málinu.

Einnig kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar að fíkniefnamálum hafi fjölgað frá því í gær og eru þau nú orðin 31 talsins sem sé svipaður fjöldi og í fyrra. Mest séu þetta neyslumál en í einhverjum þeirra er grunur um sölu á efnum. Lagt hefur verið hald á kókaín, amfetamín, kannabis, E-töflur og MDMA.

Færsla lögreglunnar í Vestmannaeyjum í heild

 
Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing