Aðdáendur Entourage-þáttanna bíða með mikilli eftirvæntingu eftir kvikmyndinni sem er byggð á þáttunum. Myndin er tilbúin en hún verður hins vegar ekki frumsýnd fyrr en í júní á næsta ári.
Adrian Grenier, sem lék stórstjörnuna Vincent Chase, í þáttunum sagði í viðtali við Huffington Post að framleiðsla myndarinnar hafi tekið ótrúlega stuttan tíma.
Þetta var í rauninni ótrúlegt. Ég hef aldrei verið hluti af kvikmynd sem tók svona stuttan tíma að gera. Við skutum hana á sex vikum. Þau voru einhverja tvo mánuði að klippa hana og núna er hún tilbúin. Það er búið að prófa hana og fólk elskar hana. Við erum bara að bíða eftir júní.
Entourage voru gríðarlega vinsælir þættir en átta seríur voru framleiddar á árunum 2004 til 2011.
Í þáttunum er fylgst með ævintýrum Vince, E, Turtle, Johnny Drama og Ara Gold. Þættirnir voru í upphafi lauslega byggðir á fyrstu árum leikarans Mark Wahlberg í Hollywood en hann er einn af framleiðendum þáttanna.
Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af einni einustu frétt.