Hinn 19 ára gamall Jack Johnson hefur eytt 20 þúsund pundum, tæpum þrem milljónum króna, í lýtaaðgerðir til að líta út eins og David Beckham.
Í umfjöllun breska dagblaðsins Metro kemur fram að peningarnir hafi Jack fengið í bætur. Hann segist elska hvernig David Beckham lítur út og hvernig hann lifir lífinu. Þá segir hann að honum líði betur ef hann lítur út eins og fótboltagoðsögnin.
Sjá einnig: Kevin Hart og David Beckham snúa aftur í sprenghlægilegri auglýsingu fyrir H&M
Hann er ekki hættur því hann segist ætla að eyða 30 þúsund pundum í viðbót í aðgerðir, um 4,5 miljónum króna. Jack er atvinnulaus og á atvinnuleysisbótum og ofan á það tekur hann lán til að eiga fyrir aðgerðunum.