Bóndinn Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson á Öndólfsstöðum í Reykjadal fékk í dag tölvupóst frá mannanafnanefnd þess efnis að nafni hans hefði verið breytt eftir langa baráttu við nefndina. Bóndinn, sem áður hét Sigurður Hlynur, fékk nafni sínu breytt í kjölfar þess að frumvarp Katrínar Jakobsdóttur um kynrænt sjálfræði var lögfest um miðjan síðasta mánuð.
Sjá einnig: Mannanafnanefnd bannar Sigurði að heita Sigríður: „Ekki eins og ég ætli að heita straubolti“
Í samtali við mbl.is segir Hlynur þetta vera „sigur fyrir einstaklingsfrelsið“ en hann tekur einnig fram að lögin séu ekki hugsuð fyrir fólk í hans sporum „heldur aðra hópa eins og transfólk og kynsegin fólk og mín breyting er hliðarverkun af þessu. Hitt er náttúrulega stærsta málið í þessu, að fjöldi manns fær nú að heita sínum nöfnum.“