Fótboltakappinn Cristiano Ronaldo var staddur í Færeyjum á dögunum en landslið Portúgals mætti heimamönnum í undankeppni HM í fótbolta. Ronaldo og félagar unnu leikinn 6-0. Hann skoraði eitt mark og reyndi einnig að kynnast færeyskri stúlku á meðan hann dvaldi í Þórshöfn.
Aimo Helbo birti samskipti sín og Ronaldo á Facebook en þar kom meðal annars fram að hann vildi hitta hana. Hún var hins vegar stödd í Danmörku og komst því ekki að hitta hann.
Hann virtist afar dapur að geta ekki hitt hana — sérstaklegar þegar hún benti honum á að hann myndi eflaust aldrei aftur snúa aftur til Færeyja.