Franskur tveggja barna faðir var í vikunni dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir vanrækslu. Maðurinn sem á tvo syni, þriggja og fjögurra ára er sakaður um að hafa eingöngu nært drengina á Coca-Cola. AFP fréttastofan greinir frá þessu.
Málið hefur vakið mikla athygli í Frakklandi en maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa beitt eiginkonu sína og börn ofbeldi. Maðurinn sem er greindarskertur kunni hvorki að lesa né skrifa en hann eyddi ölum peningum heimilisins í áfengi.
Eftir að upp komst um málið var drengjunum komið á önnur heimili en fjarlægja þurfti sjö tennur úr öðrum dregnum.