Lögreglan á Suðurnesjum handtók ölvaðan mann á þriðjudag sem hafði látið öllum illum látum um borð í flugvél WOW Air frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur. Maðurinn er kominn á bannlista hjá WOW Air. Þetta kemur fram á Vísi.
Samkvæmt Vísi var farþegum hefur verið boðin áfallahjálp vegna málsins. Greint er frá því að maðurinn hafi brugðist illa við og byrjað að öskra á flugþjón þegar honum var meinað að fara salernið í aðfluginu en það er óheimilt þegar stutt er í lendingu.
Þá greinir Vísir frá því að maðurinn hafi áreitt aðra farþegar vélarinnar, öskrað á erlendan karlmann og veist að honum. Manninn sakaði ekki, samkvæmt Vísi. Maðurinn var handtekinn við komuna til Keflavíkur og var hann yfirheyrður þegar hann hafði sofið úr sér.