Auglýsing

Fékk eins bréf og Tobba frá trúarofstækismanni

Eins og Nútíminn greindi frá í síðustu viku fengu nýbökuðu foreldrarnir Tobba Marinós og Karl Sigurðsson, sambýlismaður hennar, bréf frá trúarofstækismanni sem vildi minna á að Jesú gæti læknað fæðingargalla.

Ekki kom fram hver sendi bréfið en ég afþakka frekari bréfasendingar með loforðum um að lækna fæðingargalla barna. Slík bréf eru vægast sagt vanhugsuð. Margir foreldrar eiga um sárt að binda vegna veikinda barna sinna og það er slæmt að reyna að vekja með þeim falsvonir um að hægt sé að lækna þau með trúnni einni,“ sagði Tobba.

Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, fékk samskonar bréf fyrr í vetur sem innihélt sama bækling um læknirmátt trúarinnar. Þá var rithöndin svipuð, ef ekki sú sama.

Ég tengdi bréfsendinguna við það að ég hafði nýlega verið í viðtali í Fréttablaðinu þar sem meðal annars kom fram að ég á hreyfihamlaðan son. Bréfið kom illa við mig og mér þætti gott ef bréfritarinn fengi þau skilaboð að þessar sendingar valda bara vanlíðan.

Veistu meira? Hafðu samband ef þú veist hver er á bakvið þessar bréfasendingar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing