Auglýsing

Fékk sprautunál í póstkassann í Kópavogi

„Ég hefði ekki viljað að ólétta konan mín færi að sækja póst og myndi stinga sig á þessu,“ segir Kópavogsbúinn Sindri Vest.

Sprautunál var skilinn eftir í póstkassa Sindra og fjölskyldu og hann hefur enga hugmynd um hver er á bakvið ódæðið. „Mágkona mín og kærastinn hennar búa hjá okkur og þau voru að fara út klukkan 23 í gær. Þau ákváðu að kíkja í póstkassann og sáu þá nálina. Þau létu mig vita að þessu í morgun,“ Sindri.

Ertu með einhverja hugmynd um hver er skildi nálina eftir?

„Nei. Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu.“

Sindri hringdi strax í lögregluna en fékk ekki þau svör sem hann bjóst við.

Ég bað þá um að fjarlægja nálina en þeir sögðu mér að setja hana bara í flösku og henda henni. Ég sagðist ekki vilja snerta þetta og þeir sögðu mér að húsmæður í Breiðholti gætu það og þá gæti ég það. Ég er búinn að vera reyna ná á húsfélagið til að skoða myndavélarnar en hef ekkert náð í þau.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing