Nútíminn tók saman nokkur ummæli úr yfirlýsingunni sem Hanna Birna sendi frá sér í gær sem meika ekki mikinn sens.
„Frá upphafi hef ég reynt að vanda til verka í þessu máli og alltaf brugðist við með þeim hætti sem ég taldi satt og rétt.“
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari í lekamálinu, segist ekki muna eftir annari eins gagnrýni á störf ákæruvaldsins frá jafn valdamiklum aðila og ráðherra líkt og í leikamálinu.
„Ég brást strax í upphafi við með sérstakri skoðun í ráðuneytinu, hef orðið við öllum beiðnum lögreglu um gögn og upplýsingar en um leið reynt að vernda mannréttindi og trúnað við aðra en þá sem rannsóknin beindist að.“
Í þriðja bréfi umboðsmanns Alþingis til Hönnu Birnu kemur fram að hún gagnrýndi lögreglu fyrir að leggja hald á tölvu Gísla Freys, þáverandi aðstoðaranns síns. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hélt því fram í dómssal að játning Gísla Freys væri fyrst og fremst til komin vegna gagna sem fundust í umræddri tölvu. Þá viðurkenndi verjandi Gísla Freys að eflaust hefðu þau „hjálpað honum“ að breyta afstöðu sinni.
„Ég hef ítrekað tjáð mig um að ég hafi ekki blandað mér með óeðlilegum hætti í umrædda rannsókn og það hafa fyrrverandi lögreglustjóri, ríkissaksóknari, rannsakendur og loks héraðsdómur staðfest með niðurstöðum sínum.“
Hanna Birna kom ítrekað á framfæri gagnrýni sinni á rannsókn lögreglu á lekamálinu svokallaða við Stefán Eiríksson, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á meðan að rannsókn málsins stóð yfir. Á meðal þess sem Hanna Birna sagði við Stefán var að „þegar þessu mái yrði lokið þá væri það alveg ljóst í hennar huga að það þyrfti að rannsaka rannsókn lögreglu og ríkissaksóknara.“ En það er auðvitað spurning hvernig fólk skilgreinir „óeðlilegt“
„Ég hefði hins vegar hvorki trúað því að illskan í umræðunni yrði svo mikil né að hún fengi svo mikið á mig og þá sem næst mér standa.“
„Þetta er bara pólitík mamma – sættu þig við það!“ sagði níu ára dóttir Hönnu Birnu í maí. Hanna Birna birti ummælin á Facebook og greiddi fyrir dreifingu á færslunni.