Rappararnir Flóni, Birnir og Joey Christ sameinuðu krafta sína í laginu OMG og sendu í dag frá sér stórskemmtilegt myndband við lagið.
Í myndbandinu fara þeir í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn, Skemmtigarðinn og Skypark og njóta lífsins.
Vignir Daði og Joey Christ leikstýrðu myndbandinu og Vignir sá um upptöku og klippingu. Marteinn framleiddi lagið.