Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur hátíðarávarp á stóra sviðinu á Arnarhóli eftir Gleðigönguna á laugardaginn. Þetta verður í fyrsta skipti sem forseti Íslands tengist hátíðinni með nokkrum hætti. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Gunnlaugur Bragi Björnsson, gjaldkeri Hinsegin daga, segir í samtali við Fréttablaðið aðstandendur hátíðarinnar afar ánægða og stolta með aðkomu Guðna að hátíðinni „Við leituðum til hans,“ segir hann.
Það hafði oft komið til tals og okkur fannst í ljósi þess að við höfum verið í góðu samstarfi við ráðherra, borgastjóra og svo framvegis að það vantaði að fá stimpilinn frá forsetaembættinu.
Haft var samband við Guðna daginn eftir kosningar og Gunnlaugur segir í Fréttablaðinu að viðbrögðin hafi verið ótrúlega jákvæð. „Þetta var því komið inn í dagbók forseta töluvert áður en hann tók við embættinu.“
Gleðigangan fer fram á laugardaginn og er hápunktur Hinsegin daga, sem hefjast í dag. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni Hinsegindagar.is.