Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Barnarverndarstofu í máli sem Freyja Haraldsdóttir höfðaði gegn stofunni. Frá þessu er greint á Vísi.is.
Freyja stefndi Barnaverndarstofu eftir að henni var neitað um að gerast fósturforeldri í október á síðasta ári. Freyja taldi að brotið hefði verið á mannréttindum sínum.
Hún taldi sig ekki hafa notið sömu málsmeðferðar og ófatlaðir við umsókn sína um að gerast fósturforeldri.
Sjá einnig: Freyju Haralds neitað um að gerast fósturforeldri og ætlar í mál við Barnaverndarstofu
Í hnotskurn snýst þetta um það hvort fatlað fólk fái sömu meðferð og sama umsagnarferli og ófatlað fólk,“ sagði Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lögmaður Freyju, í samtali við Vísi á síðasta ári.
Dómur í málinu var kveðinn upp klukkan eitt í dag.