Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti tilkynnti í dag fyrsta listamanninn sem kemur fram á jólatónleikum hans, Jülevenner, í ár. Hinn geysivinsæli Friðrik Dór mun koma fram á tónleikunum í ár.
Friðrik Dór var hluti af Jólagestum Björgvins árin 2016 og 2018 en Gauti greinir frá því á Instagram að loksins hafi tekist að losa Frikka frá þungum samningum við Bó.