Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson og eiginkona hans Lísa Hafliðadóttir eiga nú von á sínu öðru barni en þetta kom fram í viðtali Friðriks á K100 á dögunum.
Friðrik og Lísa eiga fyrir dótturina Ásthildi sem er fædd árið 2013. Þau giftu sig á Ítalíu síðasta sumar. Friðrik er um þessar mundir á tónleikaferðalagi um landið ásamt Jóni Jónssyni bróður sínum. Hann gaf út lagið Sjö í síðustu viku.
Friðrik Dór var í viðtali hjá Sigga Gunnars á K100 í síðustu viku þar sem hann ræddi meðal annars nýja lagið. Von er á nýju efni frá söngvaranum á næstunni.