Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór giftist æskuástinni, Lísu Hafliðadóttur, á Ítalíu í dag. Brúðkaupsgestir eru mættir til Toskana en um 100 manns er boðið.
Lísa hefur verið innblástur fyrir marga smelli Friðriks í gegnum árin, meðal annars lagið „Hlið við hlið“ sem kom honum á kortið.