Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson og eiginkona hans Lísa Hafliðadóttir hafa sett einbýlishús sitt í Hafnarfirði á sölu. Friðrik greindi frá þessu á Facebook í dag.
Sjá einnig: Áslaug Arna selur íbúðina í Stakkholti
„Hér er dýrðlegt að drekka morgunbollann á pallinum, stutt í nýja ærslabelginn á Víðistaðatúni, skóla og leikskóla og auðvitað stutt í miðbæinn okkar fagra. Ég sé það núna þegar ég skrifa þennan texta að það er í raun fáránlegt að við séum að selja,“ skrifar Friðrik en þau ætla sér að færa sig um set í Hafnarfirðinum.
Á vef Vísis segir um húsið að það sé mikið endurnýjað fjögurra herbergja einbýlishús á góðum stað en eignin er á þremur hæðum. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu og tvö baðherbergi. Hér að neðan má sjá myndir.