Svala og íslenski Eurovision-hópurinn eru komin til Kænugarðs í Úkraínu og það styttist óðum í fyrri undankeppnina sem fer fram eftir tæpa viku. Fyrsta æfingin á sviðinu fór fram í morgun og þar var Svala í fötunum sem hún hannaði tveimur góðum vinum sínum í Los Angeles. Þeir heita John Sakalis og Eddie Debarr.
Í frétt RÚV kemur fram að farangur hópsins hafi ekki komist á leiðarenda þegar þau lentu í Kænugarði í gær. Svala var sem betur fer með sviðsfatnað í handfarangri. Vel gert! Þá segir einnig að Svala muni ekki koma fram í þeim fatnaði sem hún hyggst keppa í, hún muni þó klæðast hluta búningsins á æfingunni.
Svala er í hvítu líkt og þegar hún tók þátt í keppninni á Íslandi en núna er hún með skikkju
She sounds great on 'Paper' and even better on stage! @svalakali is rehearsing #ESC2017 pic.twitter.com/tMp3t6x04f
— Eurovision Song Contest (@Eurovision) May 1, 2017
Svala er ekki með sérstakan stílista með í för líkt og venjan er heldur ætlar hún að sjá um það sjálf.
https://twitter.com/razzzvy94/status/858974642291314689