Danski stórleikarinn Nikolaj Coster-Waldau sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk Jaime Lannister í Game of Thrones þáttunum er staddur á landinu. Hann hefur sýnt frá ferð sinni á Instagram síðu sinni í dag og í gær.
Nikolaj birti myndband frá Skólavörðustíg og frá bílferð úti á landi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Coster-Waldau heimsækir Ísland en leikarar Game of Thrones þáttanna eru duglegir að kíkja til landsins, hvort sem það er fyrir tökur á þáttunum eða bara til gamans.
Sjá einnig: Emilia Clarke og Kit Harington stödd á Íslandi við tökur á Game of Thrones
Síðasta þáttaröðin af Game of Thrones er væntanleg. Aðdáendur eru gífurlega spenntir fyrir seríunni en fyrsti þáttur verður frumsýndir 14. apríl næstkomandi.
Sjá einnig: HBO gefur út rosalega stiklu fyrir nýjustu seríu Game of Thrones