Rapparinn Gísli Pálmi tók upp tónlist með rapparanum Ghostface Killah í hljóðveri í Reykjavík í gær. Þetta kemur fram á fréttavefnum Iceland Monitor, sem er nokkurs konar mbl.is á ensku.
Á Iceland Monitor kemur fram að Gísli Pálmi hafi í gær sent út Snapchat af upptökunum. Þá birti Gísli þessa mynd í gær af Ghostface Killah í peysu merktri Glacier Mafia, sem er hópurinn hans.
https://instagram.com/p/4SbfHmNj5V/
Ghostface Killah er í hljómsveitinni Wu-Tang Clan sem kom fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardal um helgina. Gísli Pálmi kom einnig fram á hátíðinni.
Ghostfacd Killah hefur áður komið til landsins. Hann kom fram á tónleikum í tengslum við Reykjavik Fashion Festival í apríl árið 2011.