Starfsfólk Bónuss á Laugavegi gleymdi að læsa versluninni á Menningarnótt með þeim afleiðingum að fjöldi fólks ráfaði um ganga verslunarinnar einum og hálfum klukkutíma eftir lokun í von um að geta keypt eitthvað. Þetta kemur fram á mbl.is.
Á mbl.is er haft eftir manni sem var í versluninni að fólk hafi að mestu verið afslappað og glott eða hlegið. Enginn var að afgreiða og sumir tóku sig til og leituðu að starfsfólki án árangurs.
Axel Sigurðsson, verslunarstjóri í Bónus á Laugavegi, kom svo loksins á staðinn og er í frétt mbl.is sakaður um að hafa rekið fólk út með látum og ýtt við viðskiptavini. Sjálfur segist hann hafa verið ákveðinn.
„Það voru um 100 manns inni í búðinni þegar ég kom. Ég reyndi að reka fólkið út og það tók um fimm mínútur,“ segir Axel í samtali við mbl.is.
Sumum fannst ég vera með læti og leiðindi. Ég var bara ákveðinn.
Axel segist í samtali við mbl.is ekki vita til þess að neinu hafi verið stolið úr versluninni þetta kvöld.