Breski sjónvarpsmaðurinn Graham Norton fór yfir nokkur Eurovision lög í myndbandi sem birtist á Eurovision Facebook-síðu BBC. Hann sagði að fólk sem líkar við háværa tónlist muni kjósa Hatara.
„Íslendingar hljóta að vera ánægðir með það að þetta verði ekki í landinu á meðan Eurovision fer fram. Nágrannarnir fá dásamlegt frí frá þessum látum,“ segir Norton í þessu stórskemmtilega myndbandi.
Hér má sjá Norton fara yfir lögin