Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, skokkaði um lóð Bessastaða í morgun og tíndi rusl í poka. Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé rakst á Guðna þegar hún var sjálf að skokka og sagði frá málinu á Facebook-síðu sinni og Rúv.is fjallaði um málið.
„Er svo stolt af forsetanum mínum sem var að týna rusl á Bessastaðalóðinni þegar ég skokkaði fram hjá í morgun,“skrifar Halldóra á Facebook.
Fram kemur í frétt Rúv að sú iðja sem forsetinn stundaði í morgun þ.e.a.s. að skokka um og tína rusl, sé á ensku kallað, „plogging“, sem er blanda af enska orðinu „jogging“ og sænska frasanum „plocka upp“.
Er svo stolt af Forsetanum mínum sem var að týna rusl á Bessastaðalóðinni þegar ég skokkaði fram hjá í morgun / So…
Posted by Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé on Sunnudagur, 25. mars 2018