Einn vinsælasti snappari landsins, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir og eiginmaður hennar, Guðmundur Þór Valsson, eignuðust dóttur í morgun. Stúlkan er annað barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau soninn Val Elí.
Síðustu mánuði hefur Guðrún Veiga veitt fylgjendum sínum innsýn inn í meðgönguna og allt sem henni fylgir ásamt því að ræða allt á milli himins og jarðar eins og hennar er von og vísa. Stúlkan var tekin með skipulögðum keisaskurði í morgun og því vissu fylgjendur Guðrúnar Veigu upp á hár hvenær von væri á fyrstu fréttum af dótturinni.
Hjónin mættu upp á Landspítala í morgun og ekki leið á löngu þangað til að stúlkan var fædd. „Og hjartað sprakk,“ skrifaði Guðrún Veiga með mynd sem hún deildi af dótturinni á Facebook og Instagram.
Þegar þetta er skrifað hafa fleiri en 3.100 manns lækað myndina á Facebook og tæplega 400 manns hafa skilið eftir kveðju til fjölskyldunnar. Fleiri en fjögur þúsund hafa lækað sömu mynd á Instagram. Það er því ljóst að margir fylgjast með snapparanum vinsæla.
Guðmundur Valur, betur þekktur af fylgjendum Guðrúnar Veigu sem Tusku-Brandur, segir í samtali við Nútímann að það hafi verið algjört æði að fá stúlkuna loksins í fangið í morgun. „Hún er rosalega fín, næstum fjögur kíló,“ segir hann og bætir við að allt hafi gengið vel og mæðgurnar hafi það fínt saman á spítalanum.
Hann pælir ekki mikið í sviðljósinu. „Þetta er bara allt í lagi, ég velti mér lítið upp úr þessu,“ segir Guðmundur. Þegar Nútíminn náði tali af honum hafði hann skotist heim og var að sýna syni þeirra hjóna myndir af nýfæddu stúlkunni.
Nútíminn óskar fjölskyldunni innilega til hamingju!
Hér er hægt að fylgjast með Guðrúnu Veigu á Instagram. Hún er með notendanafnið gveiga85 á Snapchat.