Gummi Ben er bókstaflega alls staðar.
Helgi Sig, skopmyndateiknari Morgunblaðsins, notar stórkostlega frammistöðu Gumma þegar hann lýsti leik Íslands og Austurríkis á miðvikudag í teikningu dagsins.
Helgi setur lýsingu Gumma í samhengi við forsetakosningarnar á laugardaginn og hafa sumir sagt að hann teikni upp hvað gerist ef ungt fólk fjölmenni ekki á kjörstað.