Meirihluti bæjarstjórnar Fjallabyggðar, sameinaðs sveitarfélags Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, hefur ráðið Gunnar I. Birgisson sem nýjan bæjarstjóra sveitarfélagsins. Þetta kemur fram á Kjarnanum.
Gunnar tekur við af Sigurði Val Ásbjarnarsyni, sem óskaði eftir að láta af störfum af persónulegum ástæðum. Í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Fjallabyggðar segir að Gunnar hafi mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og hafi verið bæjarstjóri í Kópavogi til fjölda ára.
Sigurður Valur segist í tilkynningu á vef Fjallabyggðar að starfslokin séu gerð í fullri sátt við bæjarfulltrúa.
„Ég vil þakka bæjarfulltrúum Fjallabyggðar fyrir ánægjulegt samstarf um leið og ég óska þeim góðs gengis við störf sín fyrir samfélagið. Einnig þakka ég starfsmönnum bæjarfélagsins fyrir góð kynni og gott samstarf,“ segir hann.
„Margt hefur áunnist frá árinu 2010 en mörg spennandi verkefni eru framundan. Staða sveitarfélagsins er sterk og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum. Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka íbúum Fjallabyggðar fyrir gott samstarf um leið og ég óska bæjarfélaginu alls hins besta.