Bardagakappinn Gunnar Nelson og Fransiska Björk Hinriksdóttir eiga von á barni. Þau tilkynntu gleðitíðindin með skemmtilegum myndum á Instagram í dag en þau eru stödd í Prag í Tékklandi.
Gunnar á fyrir eitt barn, hinn fimm ára Stíg Tý en þetta verður fyrsta barn hans og Fransisku.