Beyoncé sendi óvænt frá sér lagið Formation á laugardagskvöld. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Beyoncé kemur fram með Coldplay í hálfleik á Superbowl á sunnudagskvöld. Time greinir frá því að hún hafi flutt nýja lagið á æfingu fyrir Superbowl en ekki hefur fengist staðfest hvort hún frumflytji lagið á morgun.
Formation er fyrsta lagið sem Beyoncé sendir frá sér síðan hún sendi frá sér plötu árið 2013.