Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson hyggst leggja fram kærur vegna ásakana um heimilisofbeldi. Hvern hann ætlar að kæra liggur ekki fyrir. Þetta kemur fram á Vísi.
Thelma Björk Steimann, barnsmóðir og fyrrverandi kærasta Hafþórs, ber hann þungum sökum í viðtali í Fréttablaðinu um helgina og lýsir ítrekuðu ofbeldi á meðan þau voru saman. Áður hafði Fréttablaðið greint frá því að Hafþór hafi verið kærður til lögreglunnar vegna nokkurra atvika í samskiptum sínum við aðra fyrrverandi kærustu.
Kjartan Ragnars, lögmaður Hafþórs, segir á Vísi að það verði örugglega lagðar fram kærur. „En, hvernig að því verður staðið, það er í vinnslu. Rykið er ekki sest ennþá,“ segir hann.
Hafþór hafnar þessum ásökunum í færslu á Facebook-síðu sinni og segist ekki kannast við að hafa beitt kærustur sínu ofbeldi.