Hakkara var vísað úr flugvél í febrúar eftir að hann tísti um öryggisgalla vélarinnar. Áður hafði honum tekist að taka stjórn á flugvél og láta hana fljúga til hliðar í skamma stund. Þetta kemur fram í umsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI um leitarheimild.
Hakkarinn Chris Roberts starfar sem öryggisráðgjafi hjá One World Labs. Hann sagði fulltrúum FBI í febrúar að hann hafi hakkað sig inn í afþreyingarkerfi United Airlines-flugvélar og breytt kóða í svokallaðri Thrust Management-tölvu á meðan hann var um borð í vélinni.
Það gerði honum kleift að taka stjórn á vélinni og breyta stefnu hennar. Þetta kemur fram í sömu gögnum frá FBI.
Roberts var í flugi frá Chicago til Syracuse í New York og birti galgopalegt tíst á Twitter um að hann væri að spá í að hakka sig inn í tölvukerfi flugvélarinnar.
Þegar vélin lenti í Syracuse biðu hans tveir fulltrúar frá FBI og tveir lögregluþjónar. Hann var yfirheyrður í marga klukkutíma, samkvæmt frétt Wired.
Þá voru tvær fartölvur hans gerðar upptækar ásamt nokkrum hörðum diskum og usb-lyklum.
Í gögnum FBI kemur fram að hann viðurkenni að hafa oft hakkað sig inn í tölvukerfi flugvéla. Hann segist einu sinni hafa tekið stjórn á flugvél í skamma stund en hefur ekki gefið upp hvenær það var.